Tjörvi Þórsson
Tjörvi Þórsson
Tjörvi Þórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sagafilm. „Tjörvi kemur til Sagafilm með langa reynslu í kvikmyndaframleiðslu þar sem hann hefur á seinni árum unnið í Netop Films að framleiðslu á þeirra kvikmyndum, nú síðast kvikmyndinni…

Tjörvi Þórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Sagafilm. „Tjörvi kemur til Sagafilm með langa reynslu í kvikmyndaframleiðslu þar sem hann hefur á seinni árum unnið í Netop Films að framleiðslu á þeirra kvikmyndum, nú síðast kvikmyndinni Northern Comfort sem frumsýnd verður á Íslandi í haust. Tjörvi er með M.Sc.-próf í alþjóðaviðskiptum og MA í alþjóðasamskiptum,“ segir í tilkynningu frá Sagafilm. Þar er haft eftir Ragnari Agnarssyni stjórnarformanni að spennandi tímar séu „fram undan við framleiðslu á leiknu og öðru dagskrárefni í Sagafilm. Það er mikill akkur í að fá Tjörva í lið með okkur.“ Sjálfur segir Tjörvi það „sérstaklega ánægjulegt að taka við öflugu framleiðslufyrirtæki í kvikmyndagreininni á Íslandi. Það er spennandi að takast á við stjórnun á sterku fyrirtæki með starfsemi og viðskipti víða um heim.“