Alls voru rúmlega 206.200 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í febrúar 2023 samkvæmt skrám. Þar af voru tæplega 109.200 karlar starfandi og um 97.000 konur. Starfandi einstaklingum fjölgaði um rúmlega 10.100 á milli ára sem samsvarar 5,2% fjölgun, segir á vef Hagstofunnar.