Magnús Árni Skúlason hjá Reykjavik Economics er gestur í nýjasta þætti Dagmála. Þar ræðir hann nýja skýrslu um lítil og meðalstór fyrirtæki.
Magnús Árni Skúlason hjá Reykjavik Economics er gestur í nýjasta þætti Dagmála. Þar ræðir hann nýja skýrslu um lítil og meðalstór fyrirtæki.
Ný greining Reykjavik Economics sem unnin var fyrir Íslandsbanka sýnir að lítil og meðalstór fyrirtæki réttu nokkuð hratt úr kútnum á árinu 2021 þegar alvarlegustu áhrif heimsfaraldursins voru gengin yfir

Ný greining Reykjavik Economics sem unnin var fyrir Íslandsbanka sýnir að lítil og meðalstór fyrirtæki réttu nokkuð hratt úr kútnum á árinu 2021 þegar alvarlegustu áhrif heimsfaraldursins voru gengin yfir.

Magnús Árni Skúlason hagfræðingur er gestur í nýjasta þætti Dagmála og ræðir þar niðurstöður skýrslunnar.

„Það er ánægjulegt að það fóru ekki mörg fyrirtæki í gjaldþrot þannig að stuðningsaðgerðir stjórnvalda hafa virkað þótt við séum kannski ekki búin að súpa seyðið af þeim vegna verðbólgu í kjölfar þess að peningamagn í umferð fór mjög vaxandi.“

Flest mjög smá í sniðum

Magnús Árni bendir á þá staðreynd að langflest íslensk fyrirtæki eru afar smá og með veltu undir 250 milljónum króna (95% allra fyrirtækja og skila 50,3% hagnaðarins í kerfinu). Þá séu stórfyrirtæki sem velti meira en milljarði króna aðeins 1,5% heildarfjöldans en skili 40,4% af hagnaði í fyrirtækjahagkerfinu. Magnús Árni segir athyglisvert að sjá að meðalstór fyrirtæki með veltu á bilinu 250-1.000 milljónir króna á ári séu óverulegur hluti kerfisins, 3,5% af heildarfjöldanum og skili aðeins 9,3% af hagnaðinum.

„Fyrirtækjum með meira en milljarð í veltu hefur fjölgað þannig að viðskiptahagkerfið og fyrirtækin í landinu eru sterkari. Það er líka niðurstaða okkar að skuldahlutfall hefur farið lækkandi en hlutfall launa hefur líka hækkað. Laun eru mjög góð hér á landi. T.d. eru laun í Póllandi rétt um helmingur af þeim launum sem eru hér og er þá ekki tekið tillit til framfærslukostnaðar.“

Stærðin skiptir máli

Í viðtalinu bendir Magnús Árni á að íslensk fyrirtæki muni þurfa að stækka á komandi árum. Þótt litlum fyrirtækjum virðist vegna ágætlega þá er handbært fé þeirra alla jafna ekki mjög mikið sem gefur ástæðu til að ætla að þau geti átt erfitt með að standa af sér stærri áföll. Þá sé einnig mikilvægt að fyrirtæki geti eflt þjónustu sína og framboð. Tekur hann dæmi af íslensku þjónustufyrirtæki sem sinni m.a. uppbyggingu í landeldi. Það fyrirtæki þyrfti að auka samstarf við önnur íslensk fyrirtæki til þess að geta veitt heildstæðar lausnir til kaupenda. Það sé torvelt vegna skorða sem samkeppnisyfirvöld setji hér á landi. Erfitt sé að keppa t.d. við norsk stórfyrirtæki sem geti komið hingað til lands og þjónustað viðskiptavini með heildstæðum hætti, bæði hvað þjónustu og vörur varðar.

Viðtalið við Magnús Árna er aðgengilegt á mbl.is.