Aldrei hefur fleiri bílum verið lagt við flugstöðina í Keflavík um páska. Uppselt er í stæði Isavia, og það stefnir í það sama hjá Base Parking sem hefur jafn stór svæði til umráða.
Aldrei hefur fleiri bílum verið lagt við flugstöðina í Keflavík um páska. Uppselt er í stæði Isavia, og það stefnir í það sama hjá Base Parking sem hefur jafn stór svæði til umráða. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Isavia tilkynnti um miðjan dag í gær að öll bílastæði væru uppseld um páskana, fólk þyrfti því að leita annarra leiða. Sömu sögu er að segja af bílastæðaþjónustunni Base Parking, sem hefur verið starfrækt frá árinu 2017

Ferðalög

Isavia tilkynnti um miðjan dag í gær að öll bílastæði væru uppseld um páskana, fólk þyrfti því að leita annarra leiða. Sömu sögu er að segja af bílastæðaþjónustunni Base Parking, sem hefur verið starfrækt frá árinu 2017. Ómar Þröstur Hjaltason, framkvæmdastjóri og stofnandi Base Parking, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að nú stefni í stærstu páska frá upphafi hjá fyrirtækinu. Að hans sögn eru þeir með um það bil jafn mörg stæði og Isavia á sinni könnu. Base Parking býður upp á stæði sem eru stuttan spöl frá vellinum, en viðskiptavinurinn lætur fyrirtækinu bílinn í té í brottfararsalnum og svo eru honum afhentir lyklarnir við heimkomu. Viðskiptavinurinn þurfi því ekki sjálfur að eyða neinum tíma í að leita að stæði.

„Það er alveg ótrúlegt að ná svona miklum fjölda, ég hef áður sagt í fréttum að það væri ekki séns að við myndum ná að fylla stæðin nokkurn tímann, en það er að gerast núna,“ segir Ómar, sem gerir ráð fyrir því að loka fyrir pantanir í dag.

Bættir ferlar

Ómar segir að fólk sé í auknum mæli farið að bóka ferðir langt fram í tímann, og að pantanastaðan sé orðin góð fyrir sumarið. Það auðveldi alla skipulagningu að fólk sé orðið framsýnna og því er hægt að gera betri áætlanir. Ómar áætlar að um tíu manns muni standa hverja vakt í páskatraffíkinni og segir að miklu máli skipti að skipuleggja sig vel.

„Við sjáum fyrir okkur að þetta muni ganga vel og allir ferlar verða sífellt betri.“ Í desember í fyrra mætti fyrirtækið miklum áskorunum þegar óveður skall á og segir Ómar að fyrirtækið hafi lært gríðarlega mikið af þeirri reynslu, sem skilar sér nú í bættum ferlum og betri þjónustu.