40 ára Tinna fæddist í Indónesíu en var ættleidd þaðan og ólst upp á Djúpavogi. Hún býr í Grafarvogi í Reykjavík. Tinna er lögfræðingur frá HR og vinnur hjá Icelandair. Áhugamálin eru ferðalög, kvikmyndir, bókmenntir, tónlist og samvera með fjölskyldunni

40 ára Tinna fæddist í Indónesíu en var ættleidd þaðan og ólst upp á Djúpavogi. Hún býr í Grafarvogi í Reykjavík. Tinna er lögfræðingur frá HR og vinnur hjá Icelandair. Áhugamálin eru ferðalög, kvikmyndir, bókmenntir, tónlist og samvera með fjölskyldunni.


Fjölskylda Eiginmaður Tinnu er Andri Viðar Oddsson, f. 1991, rafiðnfræðingur frá HR og rafvirki hjá Útgerðarfélagi Reykjavíkur. Börn þeirra: Thelma Björk, f. 2020, Stella, f. 2021, d. 2021, og Óliver Andri, f. 2022. Fyrir átti Tinna dæturnar Söru Lind, f. 2005, og Bryndísi Ýri, 2007. Foreldrar Tinnu eru hjónin Sigríður Björnsdóttir, f. 1952, húsmóðir, og Guðlaugur Valtýsson, f. 1953, starfaði hjá RARIK á Selfossi, þar sem þau eru búsett.