Norður
♠ D
♥ ÁG32
♦ ÁD64
♣ D986
Vestur
♠ ÁKG9
♥ D1084
♦ 53
♣ ÁG2
Austur
♠ 7652
♥ 765
♦ 98
♣ K753
Suður
♠ 10843
♥ K9
♦ KG1072
♣ 104
Suður spilar 2♦.
Sveit InfoCapital stóð sig langbest í undankeppni Íslandsmótsins, skoraði 175 stig í 12 leikjum eða 14,6 stig að jafnaði. Tick Cad kom næst með 148 stig og sveitin Ekkert að frétta (áður Fréttablaðið) varð í þriðja sæti með 142. Liðsmenn InfoCapital – fyrirliðinn Jón Baldursson og makker hans Sigurbjörn (Bessi) Haraldsson – urðu efstir í butler-samreikningi mótsins með +1,15 skoraðan impa í spili.
„Maður man ekki mikið þegar vel gengur,“ segir Bessi, „en hér er eitt frekar látlaust spil sem sýnir vel stílinn hjá Jóni.“ Eftir pass tveggja fyrstu opnaði vestur á sterku grandi. Bessi sagði pass, austur líka og Jón átti leikinn með tvo kónga og einn gosa, á hættu gegn utan. Hann doblaði, sem sýnir kerfisbundið spaða og annan lit. Bessi þreifaði fyrir sér með 2♣ og passaði svo 2♦ í næsta hring. Tíu slagir, en 1G vinnst auðveldlega í AV með eðlilegu laufútspili.