Líklega verður árið 2025 næsta stóra skráningarár á markað.
Líklega verður árið 2025 næsta stóra skráningarár á markað. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nokkur óvissa ríkir um skráningaráform íslenskra fyrirtækja eftir því sem vextir hafa hækkað, markaðsaðstæður versnað og möguleikar fjármálastofnana til að endurfjármagna sig þrengst. Vitað er að þrjú ferðaþjónustufyrirtæki hafa stefnt á markað

Nokkur óvissa ríkir um skráningaráform íslenskra fyrirtækja eftir því sem vextir hafa hækkað, markaðsaðstæður versnað og möguleikar fjármálastofnana til að endurfjármagna sig þrengst.

Vitað er að þrjú ferðaþjónustufyrirtæki hafa stefnt á markað. Bláa lónið stefnir enn á skráningu í haust eða þegar aðstæður batna. Hið sama má segja um Íslandshótel. Óljósara er með skráningaráform Arctic Adventure eftir að núverandi hluthafar nýttu forkaupsrétt á hlutafé sem Hugh Short (sem var felldur sem stjórnarformaður Nova í liðinni viku) hafði gert kauptilboð í félagið fyrir hönd PT Capital.

Þá hafa Sidekick Health og Lucinity hægt verulega á vaxtaráformum sínum með það fyrir augum að lengja tímann þar til þau þurfa að sækja sér nýtt fjármagn. Coripharma hefur einnig kælt skráningaráform sín en leitar þess í stað að innspýtingu frá fagfjárfestum. Þá tilkynnti Algalíf í desember sl. að stefnt væri að skráningu árið 2025 en það gæti orðið næsta stóra skráningarárið í Kauphöllinni.

Í nóvember sl. voru fluttar fréttir af því að undirbúningur væri hafinn að söluferli Veritas-samstæðunnar, eins stærsta fyrirtækis landsins. Samkvæmt heimildum ViðskiptaMoggans hefur söluferlið nú verið sett á ís.

Að lokum má nefna að enn er stefnt að því að selja minnihluta ríkisins í Íslandsbanka á árinu, ef aðstæður leyfa. Þó er enn óvíst hvort og þá hvenær þau áform ganga eftir. Eftir því sem líður á kjörtímabilið kunna líkur að minnka á því að stjórnmálamenn treysti sér í slíkt verkefni skömmu fyrir kosningar, nema að um það ríki þverpólitísk sátt. gislifreyr@mbl.is