Páll Pálmar Daníelsson
Páll Pálmar Daníelsson
Við atvinnubílstjórarnir fögnuðum mislægu gatnamótunum við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði.

Páll Pálmar Daníelsson

Ósköp held ég að það séu ömurleg örlög að þurfa eða reyna sem ákafast að ófrægja og níða störf stjórnvalda eða gera þau tortryggileg, líkt og íslenska stjórnarandstaðan baslar jafnan við - og hefur nú bitið höfuðið af skömminni með vantrauststillögu á einn fremsta ráðherra lýðveldissögunnar í tveimur ráðuneytum. Valinkunnan afbragðsmann sem nýtur fyllsta trausts alls almennilegs fólks.

Við atvinnubílstjórarnir sem fögnuðum mislægu gatnamótunum við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði hvað mest biðjum ugglaust flestir Jóni Gunnarssyni þáverandi samgönguráðherra guðsblessunar fyrir að hafa drifið þau í gegn, jafnvel þótt verktakarnir sem framkvæmdu verkið (að vísu við erfiðar aðstæður) hefðu mátt gera betur. Satt að segja miklu betur, enda held ég að Vegagerðin hafi útilokað þá frá hinni frábæru framkvæmd sem núverandi ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson beitti sér fyrir með breikkun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði. Þessi útúrdúr í greininni er eingöngu til að undirstrika að það sem ráðherrar ákveða - það gildir og er gert.

Ég held að stjórnarandstaðan á Alþingi Íslendinga sé ekki í neinum færum til að kasta rýrð á nokkurn ráðherra ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Allra síst Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra, sem staðið hefur keikur gegn varhugaverðri tilhneigingu til að „opna landamærin fyrir alla sem leita sér betra lífs. Þetta eru jú flestir ungir karlmenn“. Ekki furða að sumar konur á þingi hafi rétt úr sér. Sjóræningjarnir, samfylkingarliðið og flóttahópurinn úr Sjálfstæðisflokknum halda að það sé til heilla að hleypa öllu þessu liði inn í landið, þótt húsnæðiskerfið, heilbrigðiskerfið, skólakerfið og umburðarlyndi okkar Íslendinga sé komið alveg að þolmörkum og geti brostið hvenær sem er. Ekki síst ef náttúruhamfarir fara að verða algengar. Lengi getur vont versnað.

Getur einhver lesandi Morgunblaðsins ímyndað sér að þjóðinni væri betur borgið ef fulltrúar stjórnarandstöðunnar skipuðu ríkisstjórnina? (Fyrirgefið mér þessa hroðalegu sviðsmynd.) Rétt fyrir risafundinn í maí!

Höfundur er leigubílstjóri.