Norður
♠ 107
♥ D1083
♦ G4
♣ ÁKG42
Vestur
♠ G863
♥ G
♦ D1076
♣ D1076
Austur
♠ KD94
♥ 74
♦ ÁK9832
♣ 3
Suður
♠ Á52
♥ ÁK9652
♦ 5
♣ 985
Suður spilar 6♥.
„Hann er seigur, þessi Peter Bertheau.“ Gölturinn er kominn heim eftir þriggja vikna hvíldarinnlögn á Tenerife, rjóður og sællegur með fullt fangið af skemmtilegum spilum. Hann hafði fylgst grannt með sænsku landsliðskeppninni á BBO og fundið þar eitt og annað bitastætt. „Lítið annað að gera ef maður spilar ekki golf.“
Bertheau var í suður og kom inn á 1♥ við tígulopnun austurs. Vestur sagði 2♦, Simon Hult í norður samþykkti hjartað með 4♣ (fyrirstaða), austur barðist í 4♦, Bertheau sagði 4♠, Hult 5♣, Bertheau 5♦ og Hult 6♥. Tígull út.
Bertheau trompaði tígul númer tvö, tók hjartaás, spilaði lauffimmu á ás, fór heim á hjartakóng, spilaði laufníu og lét hana svífa yfir! Það dugði í fimm laufslagi og tólf í allt. Vestur hnekkir slemmunni með því að leggja lauftíu á níuna, en „hver býst við svona fantabrögðum í slemmu?“