Órangútan-móðirin Zoe hefur loks lært að gefa unga sínum brjóst eftir að kona nokkur sýndi henni nákvæmlega hvað hún ætti að gera. Zoe missti móður sína ung og skorti færni sem hún hefði annars lært af móður sinni, m.a

Órangútan-móðirin Zoe hefur loks lært að gefa unga sínum brjóst eftir að kona nokkur sýndi henni nákvæmlega hvað hún ætti að gera.

Zoe missti móður sína ung og skorti færni sem hún hefði annars lært af móður sinni, m.a. að næra unga sína. Dýragarðsstarfsmaðurinn Whitlee Turner ákvað því að taka málin í eigin hendur með sýnikennslu fyrir Zoe og gaf syni sínum brjóst fyrir framan hana. Kennslan bar árangur og nú getur Zoe gefið unga sínum brjóst. Myndband má sjá á K100.is.