Barnamenningarhátíð í Reykjavík hefst á morgun, þriðjudag, og stendur til sunnudags. Boðið er upp á ókeypis dagskrá alla dagana. „Hátíðin fer fram um alla borg og býður upp á stórar og smáar sýningar og viðburði sem unnir eru fyrir börn og með börnum

Barnamenningarhátíð í Reykjavík hefst á morgun, þriðjudag, og stendur til sunnudags. Boðið er upp á ókeypis dagskrá alla dagana. „Hátíðin fer fram um alla borg og býður upp á stórar og smáar sýningar og viðburði sem unnir eru fyrir börn og með börnum. Börn sýna verkin sín á virtum menningarstofnunum og taka að miklu leyti yfir menningarlíf borgarinnar þessa sex daga sem hátíðin stendur yfir,“ segir í tilkynningu. Allar nánari upplýsingar má finna á vefnum reykjavik.is