Norður
♠ G9863
♥ K75
♦ --
♣ KG743
Vestur
♠ D5
♥ D84
♦ Á109863
♣ 65
Austur
♠ 10
♥ G109632
♦ D75
♣ D82
Suður
♠ ÁK742
♥ Á
♦ KG42
♣ Á109
Suður spilar 7♠.
„Besti mælikvarðinn á sagnvenjur er endingin.“ Gölturinn setti sig í fræðilegar stellingar. Hann hafði flett því upp að sjálfur Ely Culbertson (1891-1955) hafi fyrstur manna fjallað um eyðustökk (void showing bids) í ritum sínum snemma á síðustu öld. „Hugmyndin lifir enn góðu lífi – að minnsta kosti í Svíþjóð.“
Rimsted-bræður (Ola og Mikael) nota tvískiptan fleyg (splinter) til að gera greinarmun á einspili og eyðu. Eftir opnun Ola í suður á 1♠ stökk Mikael í 4♦ til að segja frá 8-11 hápunktum og eyðu í tígli. Ola hefði getað sagt sjö, þar og þá, en hann spurði um lykilspil með 4G og svo aftur um drottninguna í trompi. Mikael átti engan „ás“ og sýndi það með 5♦ (1430-svör) en játaði síðan trompdrottningunni við 5♥ út á fimmta spaðann. „Þá nennti Ola þessu ekki lengur og sagði sjö.“