Verk eftir Auju – Auði Björnsdóttur.
Verk eftir Auju – Auði Björnsdóttur.
Frelsi nefnist sumarsýning Grósku 2023 sem opnuð verður að kvöldi síðasta vetrardags 19. april í Gróskusalnum við Garðatorg 1 í Garðabæ milli kl. 20 og 22. Í framhaldinu er sýningin opin 20.-23

Frelsi nefnist sumarsýning Grósku 2023 sem opnuð verður að kvöldi síðasta vetrardags 19. april í Gróskusalnum við Garðatorg 1 í Garðabæ milli kl. 20 og 22. Í framhaldinu er sýningin opin 20.-23. og 29.-30. apríl milli kl. 13.30 og 17.30. „Sýningin er helguð frelsi og birtist þar frjálst sköpunarflæði í fjölbreyttum listaverkum enda eru sýnendur 24 talsins, allir úr Grósku, félagi myndlistarmanna í Garðabæ,“ segir í tilkynningu. Sýningarstjóri er Birgir Rafn Friðriksson.