Umspil Ísland tapaði með alls 10 marka mun gegn Ungverjum.
Umspil Ísland tapaði með alls 10 marka mun gegn Ungverjum. — Ljósmynd/Szilvia Micheller
HSÍ mun sækja um boðsmiða á heimsmeistaramót kvenna í lok árs, en Ísland tapaði fyrir Ungverjalandi í umspili um sæti á mótinu. RÚV greinir frá að tvö laus sæti séu á HM, en þeim verður úthlutað af IHF, Alþjóðahandknattleikssambandinu

HSÍ mun sækja um boðsmiða á heimsmeistaramót kvenna í lok árs, en Ísland tapaði fyrir Ungverjalandi í umspili um sæti á mótinu. RÚV greinir frá að tvö laus sæti séu á HM, en þeim verður úthlutað af IHF, Alþjóðahandknattleikssambandinu. HSÍ hefur sóst eftir slíku boðssæti. Boðssætunum verður úthlutað í júní eða júlí og kemur þá í ljós í sumar hvort Ísland spilar á sínu fjórða stórmóti eður ei. Ísland lék síðast á stórmóti árið 2012.