50 ára Liana er frá bænum Ternopil, sem er í vesturhluta Úkraínu, en fluttist til Íslands árið 2003 og býr í Norðlingaholti í Reykjavík. Hún er læknismenntuð og er starfsmaður við áreynslupróf á Læknasetrinu í Mjódd

50 ára Liana er frá bænum Ternopil, sem er í vesturhluta Úkraínu, en fluttist til Íslands árið 2003 og býr í Norðlingaholti í Reykjavík. Hún er læknismenntuð og er starfsmaður við áreynslupróf á Læknasetrinu í Mjódd. Hún er einnig hópþjálfari í Reebok Fitness. Áhugamálin eru jóga og hugleiðsla.


Fjölskylda Eiginmaður Liönu er Stanislav Belinskyi, f. 1971, frá Zhytomir í norður­hluta Úkraínu. Hann er lagerstarfsmaður á Landspítalanum við Hringbraut. Sonur þeirra er Davíð, f. 1998, nemi í félagsráðgjöf við HÍ.