ÍBV og FH tryggðu sér í gærkvöldi sæti í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta með sterkum útisigrum. ÍBV var fimm mörkum undir gegn Stjörnunni í hálfleik, en tryggði sér sætan sigur með glæsilegum seinni hálfleik

ÍBV og FH tryggðu sér í gærkvöldi sæti í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handbolta með sterkum útisigrum. ÍBV var fimm mörkum undir gegn Stjörnunni í hálfleik, en tryggði sér sætan sigur með glæsilegum seinni hálfleik. Urðu lokatölur 27:23. Á Selfossi var FH með undirtökin gegn heimamönnum allan tímann. Urðu lokatölur þar 33:24, en FH var með níu marka forskot í hálfleik og voru Selfyssingar aldrei líklegir til að jafna metin. » 23