Myndband af þriggja ára stúlku sló nýlega í gegn á netmiðlum. Myndbandið tók móðir stúlkunnar sem tók eftir handaförum á nýmáluðum vegg við stigaganginn fyrr í mánuðinum. Stúlkan Nellie lá strax undir grun enda mátti sjá augljós handaför hennar
Myndband af þriggja ára stúlku sló nýlega í gegn á netmiðlum. Myndbandið tók móðir stúlkunnar sem tók eftir handaförum á nýmáluðum vegg við stigaganginn fyrr í mánuðinum. Stúlkan Nellie lá strax undir grun enda mátti sjá augljós handaför hennar. Sú stutta deplaði þó varla auga þegar móðir hennar spurði hver hefði skilið eftir handaför í málningunni. „Það var Winston,“ sagði stúlkan og benti á fjölskylduhundinn sem stóð við hliðina á henni. Myndbandið má sjá á K100.is.