Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen fagnar ákvörðun ensku úrvalsdeildarinnar um að banna auglýsingar veðmálafyrirtækja framan á keppnistreyjum liða deildarinnar. Eiður glímdi sjálfur við spilafíkn um langt skeið og er talið að…
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen fagnar ákvörðun ensku úrvalsdeildarinnar um að banna auglýsingar veðmálafyrirtækja framan á keppnistreyjum liða deildarinnar. Eiður glímdi sjálfur við spilafíkn um langt skeið og er talið að hann hafi tapað um sex milljónum punda, rúmum milljarði íslenskra króna, á sínum tíma. Alls lék hann 210 leiki í úrvalsdeildinni með Chelsea, Tottenham, Stoke og Fulham.