Andadráp Hermann bóndi með eina öndina sem minkurinn drap.
Andadráp Hermann bóndi með eina öndina sem minkurinn drap. — Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Það var ófögur sjón sem blasti við bændum á Lyngbrekku í Þingeyjarsveit þegar átti að fara að tína andareggin nýverið. Minkur hafði komist inn í andahúsið og bitið endurnar á háls og lágu þær í blóði sínu

Atli Vigfússon

Laxamýri

Það var ófögur sjón sem blasti við bændum á Lyngbrekku í Þingeyjarsveit þegar átti að fara að tína andareggin nýverið. Minkur hafði komist inn í andahúsið og bitið endurnar á háls og lágu þær í blóði sínu. Alls hefur minkurinn nú drepið fimm endur og einungis fáar eftir.

Minkurinn hefur komið upp að andahúsinu oftar en einu sinni en ekki farið í þær gildrur sem settar hafa verið upp. Að sögn bóndans, Hermanns Aðalsteinssonar, er þetta mikið áfall og ljóst að minkurinn þarf að nást hvað sem það kostar.

Minknum hefur fjölgað

Fréttir af mink hafa verið nokkrar í sveitinni og virðist mink hafa fjölgað á svæðinu. Alls veiddust 28 minkar á vatnasvæði Mýrarkvíslar í haust og minkar hafa sést við Laxá. Í ágúst var læða með yrðlingahóp við Laxárvirkjun og niðri við Hraunsrétt varð vart við mink. Nokkrir högnar sáust í byrjun mars en sá mánuður var erfiður til veiða þar sem tíðarfar var óstöðugt og mikill klaki.

Þrátt fyrir það veiddist einn stór högni við Núpafoss en almennt er erfitt að eiga við minkinn bæði í Aðaldal og Laxárdal þar sem vatn rennur víða neðanjarðar og margir felustaðir eru í hrauninu. Bændur hafa áhyggjur af þessu þar sem mjög viðkvæmt lífríki er í sveitinni.

Almennt eru minkahundar ekki lengur í eigu allra veiðimanna og gildruveiði hefur tekið yfir víða. Hún skilar góðum árangri en stundum virðist minkurinn kunna að vara sig á bogum sem settir hafa verið upp.