Ásgerður Halldórsdóttir
Ásgerður Halldórsdóttir
Ásgerður Halldórsdóttir, fv. bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, bauð sig óvænt fram í stjórn Síldarvinnslunnar á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. Ásgerður hlaut þó ekki kjör í stjórn. Stjórnin var að mestu óbreytt

Ásgerður Halldórsdóttir, fv. bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, bauð sig óvænt fram í stjórn Síldarvinnslunnar á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. Ásgerður hlaut þó ekki kjör í stjórn.

Stjórnin var að mestu óbreytt. Anna Guðmundsdóttir, Baldur Már Helgason, Guðmundur R. Gíslason og Þorsteinn Már Baldursson (sem er stjórnarformaður) hlutu öll endurkjör. Björk Þórarinsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn en Erla Ósk Pétursdóttir hlaut kjör í hennar stað.