Dásamlegur Þessi dýrindis grautur er í senn bragðgóður og bráðhollur.
Dásamlegur Þessi dýrindis grautur er í senn bragðgóður og bráðhollur. — Ljósmynd/Linda Ben
Hér eru það prótín og kollagen sem leika lykilhlutverk en grauturinn er eiginlega meira eins og eftirréttur á bragðið þar sem hann er svakalega bragðgóður. Það er Linda Ben sem á heiðurinn af þessari snilld eins og henni einni er lagið

Þóra Kolbrá Sigurðardóttir

thora@mbl.is

Hér eru það prótín og kollagen sem leika lykilhlutverk en grauturinn er eiginlega meira eins og eftirréttur á bragðið þar sem hann er svakalega bragðgóður. Það er Linda Ben sem á heiðurinn af þessari snilld eins og henni einni er lagið.

Prótínríkur chiagrautur með berjum

1 1/2 msk. chiafræ

1 msk. hafrar

10 möndlur

1 dl vatn

2 skeiðar Feel Iceland-kollagen

1/8 tsk. vanilluduft (má sleppa)

2 msk. grískt jógúrt

1/2 banani

ber (fersk eða frosin)

1/2 msk. kakónibbur

kanill

kókosflögur (má sleppa)

Setjið chiafræ og hafra í skál.

Setjið möndlur og vatn í blandara og blandið þar til möndlumjólk hefur myndast (það er í góðu lagi að allar möndlurnar hakkist ekki alveg og smá bitar séu í mjólkinni). Hellið möndlumjólkinni í skál, hrærið og leyfið grautnum að taka sig í um það bil 15 mínútur eða þar til hann er orðinn þykkur.

Bætið kollageni út í og hrærið.

Bætið vanilludufti út í og hrærið.

Bætið grískri jógúrt út á skálina ásamt bananasneiðum, berjum, kakónibbum og örlitlu af kanil.

Höf.: Þóra Kolbrá Sigurðardóttir