Ráðherra ekki einn í örmum netþrjóta var okkur sagt fyrir nokkru og vakti óljósar tilfinningar. Ráðherra hafði verið hakkaður, netreikningi hans stolið. Hann var því í greipum netþrjótanna: á valdi þeirra, eða í klóm þeirra, sem gerir sama gagn

Ráðherra ekki einn í örmum netþrjóta var okkur sagt fyrir nokkru og vakti óljósar tilfinningar. Ráðherra hafði verið hakkaður, netreikningi hans stolið. Hann var því í greipum netþrjótanna: á valdi þeirra, eða í klóm þeirra, sem gerir sama gagn. „Í örmum læknisins“ heitir skáldrit í Rauðu seríunni. Þar er allt hlýlegra.