Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Norðmaðurinn Åge Hareide heillaði alla upp úr skónum á fréttamannafundi KSÍ í fyrradag.
Jákvæður, brosmildur og með hrein og greinargóð svör við öllum spurningum.
Hann hefur greinilega ekkert breyst síðan ég hitti hann á æfingasvæði Bröndby í Danmörku sumarið 2000.
Þá var hann þjálfari Bröndby sem lék gegn KR í Evrópukeppni og vann 3:1 samanlagt.
Norðmaðurinn gaf mér allan þann tíma sem ég vildi til að spjalla og spyrja og var einmitt svona. Jákvæður, brosmildur og hreinn og beinn í öllum svörum.
Mér hefur verið hlýtt til hans síðan, fylgst vel með farsælum ferli hans, og ef þetta er ekki rétti maðurinn til að taka við íslenska landsliðinu núna, þá veit ég ekki hvað.
En það má staldra við og hrósa forvera hans, Arnari Þór Viðarssyni.
Hareide skýrði frá því að Arnar hefði haft samband við sig og óskað sér góðs gengis.
„Ef þetta er hugarfar Íslendinga þá er það algjör klassi,“ sagði Norðmaðurinn um kveðju Arnars, sem var alls ekki sjálfsögð í þessari stöðu.
Arnar lagði alla sína ástríðu í starf landsliðsþjálfara en náði ekki þeim úrslitum og árangri sem vonast var eftir og í fótbolta þýðir það bara eitt.
Tapið í Bosníu varð Arnari endanlega að falli en á hans tíma með liðið fengu margir efnilegir leikmenn dýrmæta reynslu. Nú er það í höndum Hareide að vinna úr því og móta liðið hratt og vel fyrir leikina gegn Slóvakíu og Portúgal í sumar.