Norður
♠ 9
♥ ÁK10832
♦ ÁD7
♣ Á93
Vestur
♠ Á108742
♥ –
♦ G1063
♣ G54
Austur
♠ 3
♥ D94
♦ K8542
♣ 8762
Suður
♠ KDG65
♥ G765
♦ 9
♣ KD10
Suður spilar 4♠.
Gölturinn er eindreginn talsmaður Multi-sagnvenjunnar: „Fyrir utan það að spara sögn í kerfinu er leyndarhjúpurinn sem hvílir yfir opnunarlitnum mikil gullnáma.“
Gölturinn var með hugann við spil frá landsliðsæfingu Svía. Vestur opnaði á báðum borðum á 2♦ (veikir tveir í hálit) og norður doblaði í báðum tilvikum. „Ég hefði nú bara sagt tvö hjörtu, en ókei.“ Svo dró til tíðinda.
Á öðru borðinu passaði austur opnunardoblið! „Kannski til að sýna tígul, kannski bara af refskap.“ Alla vega hafði passið sljóvgandi áhrif á suður, sem stökk þráðbeint í 4♠ í þeirri trú (og von) að litur vesturs væri hjarta. Allir pass og tveir niður. Hinum megin sagði austur 2♥ (sittu/stattu) við dobli norðurs og suður punktadoblaði. Vestur upplýsti um litinn með 2♠, norður doblaði aftur og allir pass: 1100 niður.