Barry Humphries sem Dame Edna.
Barry Humphries sem Dame Edna.
Gamanleikarinn Barry Humphries er látinn 89 ára að aldri. Humphries, sem fæddist í Melbourne, fluttist til London 1959 þar sem hann átti langan og farsælan feril. Hann er þekktastur fyrir túlkun sína á hinni litríku Dame Ednu Everage, sem vakti…

Gamanleikarinn Barry Humphries er látinn 89 ára að aldri. Humphries, sem fæddist í Melbourne, fluttist til London 1959 þar sem hann átti langan og farsælan feril. Hann er þekktastur fyrir túlkun sína á hinni litríku Dame Ednu Everage, sem vakti lukku í Bretlandi á áttunda áratug síðustu aldar og fékk sinn eigin sjónvarpsþátt í framhaldinu. Anthony Albanese forsætisráðherra Ástralíu segist minnast Humphries sem „hnyttins og einstaks háðsádeiluhöfundar“.