Félagsfundur Sólveig Anna Jónsdóttir á fundinum í gærkvöldi.
Félagsfundur Sólveig Anna Jónsdóttir á fundinum í gærkvöldi. — Morgunblaðið/Eggert
Félagsfundur Eflingar, sem haldinn var í gærkvöldi í félagsheimili Eflingar, samþykkti einróma að allsherjaratkvæðagreiðsla skuli boðuð um úrsögn Eflingar úr Starfsgreinasambandinu. Þetta staðfesti Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í…

Ellen Geirsdóttir Håkansson

ellen@mbl.is

Félagsfundur Eflingar, sem haldinn var í gærkvöldi í félagsheimili Eflingar, samþykkti einróma að allsherjaratkvæðagreiðsla skuli boðuð um úrsögn Eflingar úr Starfsgreinasambandinu.

Þetta staðfesti Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í samtali við mbl.is og kvaðst búast við vendingum í næsta mánuði.

Liggi fyrir um miðjan maí

„Stjórn Eflingar fær umboð fundarins til þess að ákveða útfærslu og framkvæmd, ég sé fyrir mér að við getum gengið í þetta mál strax í upphafi maímánaðar og að niðurstaða ætti að liggja fyrir í kringum miðjan maí, ég ímynda mér það,“ segir Sólveig.

Efling hafi þá afstöðu að hagsmunum félagsmanna sé betur komið utan SGS:

„Að þá fjármuni sem félagið ver í Starfsgreinasambandið sé hægt að nota einfaldlega í að þjónusta félagsfólk betur. Jafnframt er það afstaða stjórnar félagsins að eðlilegast og réttast sé að Efling sé með beina aðild að Alþýðusambandinu,“ segir Sólveig.

Sjálfstæð aðild tímabær

„Við teljum að félag af þeirri stærðargráðu sem Efling er, með meira og minna allt vinnuafl höfuðborgarsvæðisins undir, eigi að vera með sjálfstæða aðild að Alþýðusambandinu og það sé rétt og eðlilegt að svo sé. Þetta sé einfaldlega tímabær ákvörðun,“ segir Sólveig.

Höf.: Ellen Geirsdóttir Håkansson