Vatnsnes Hlykkjóttur malarvegur sem ekki ber mikla umferð.
Vatnsnes Hlykkjóttur malarvegur sem ekki ber mikla umferð. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ætla má að það gæti kostað allt að 150 milljarða króna að koma bundnu slitlagi á þá 2.118 kílómetra tengivega á landinu sem í dag eru með malarslitlagi. Er þá út frá því gengið að meðalkostnaður við að koma slitlagi á tengivegi sé um 70 milljónir kr

Ætla má að það gæti kostað allt að 150 milljarða króna að koma bundnu slitlagi á þá 2.118 kílómetra tengivega á landinu sem í dag eru með malarslitlagi. Er þá út frá því gengið að meðalkostnaður við að koma slitlagi á tengivegi sé um 70 milljónir kr. á hvern kílómetra miðað við þær áætlanir sem fyrir liggja í dag um tengivegina til næstu fimm ára. Þetta kemur fram í svari innviðaráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Hafsteinsdóttur um bundið slitlag á héraðs- og tengivegum, sem dreift hefur verið á Alþingi

Spurði Guðrún m.a. hvenær áætlað væri að ljúka langingu bundins slitlags á alla héraðs- og tengivegi. Í svarinu segir að frá 2011 hafi verið sérstök fjárveiting í samgönguáætlun sem ætluð er til að koma bundnu slitlagi á tengivegi. „Undanfarin ár hefur þessi fjárveiting verið nálægt 2.500 millj. kr. og því hefur verið bætt við u.þ.b. 35 km af tengivegum með bundnu slitlagi á hverju ári. Ef gert er ráð fyrir að fjárveiting verði áfram 2.500 millj. kr. á ári má gera ráð fyrir að það taki um 60 ár að koma bundnu slitlagi á alla tengivegi, en ekki hefur slíkt markmið verið sett fram í samgönguáætlun,“ segir í svarinu. Allir tengivegir á landinu ná yfir rúmlega 3.400 km og þar af eru 1.297 með bundið slitlag.

Ef leggja ætti bundið slitlag á alla héraðsvegi sem eru með malarslitlagi í dag, má gera ráð fyrir að það gæti kostað um 115 milljarða. Landeigendur bera helming kostnaðar við gerð héraðsvega og allan kostnaðinn við að setja á þá bundið slitlag.