Steingrímsfjörður Varðskipið Freyja með Wilson Skaw í bandi.
Steingrímsfjörður Varðskipið Freyja með Wilson Skaw í bandi. — Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Áður en hægt verður að draga flutningaskipið Wilson Skaw til hafnar verður að færa til farm skipsins sem geymir um tvö þúsund tonn af salti. Verkefnið gæti tekið nokkra daga og liggur ekki fyrir hvenær hægt verður að ráðast í björgunaraðgerðir en…

Áður en hægt verður að draga flutningaskipið Wilson Skaw til hafnar verður að færa til farm skipsins sem geymir um tvö þúsund tonn af salti. Verkefnið gæti tekið nokkra daga og liggur ekki fyrir hvenær hægt verður að ráðast í björgunaraðgerðir en skipið hefur setið fast á Húnaflóa frá því á þriðjudaginn í síðustu viku.

„Að loknum fundi Landhelgisgæslunnar, Samgöngustofu, Umhverfisstofnunar og fulltrúa eigenda skipsins var ákveðið að varðskipið Freyja myndi leggjast utan á flutningaskipið í Steingrímsfirði og hæfist handa við það að forfæra farm skipsins til þess að ná betra jafnvægi. Það er gert til þess að hægt verði að koma skipinu til hafnar á Hólmavík,“ sagði Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Gæslunnar, við mbl.is í gær. Frá Hólmavík er stefnt að því að koma skipinu til Akureyrar.