Eyþór Víðisson
Eyþór Víðisson
Öll sala hnífa annarra en verkfæra og eldhúsáhalda verður bönnuð.

Eyþór Víðisson

Það þarf ekki að ræða frekar að hnífaburður er orðinn vandamál hér landi. Að bera hníf ógnar öryggi barna okkar, ungmenna, lögreglu og almennings. Hvað ef 27 vopnaðir einstaklingar ákveða að ráðast inn í menntaskóla í næstu viku?

Heildarlausn vandans er fjölþætt, flókin og tekur langan tíma; áralangt samtal við jaðarsetta hópa, fræðsla til framtíðar um samfélagsleg gildi, aukin menntun almennt, minna brottfall drengja úr skólakerfinu og eftirfylgd við þá sem virðast skilja við hefðbundna samfélagsgerð og margt fleira. Þetta skiptir allt máli en verður ekki fjallað um slíkt í þessum pistli.

Hér er skal rætt um skyndilausn á bráðum vanda. Við þurfum að taka hnífa af götunum og ég legg til eftirfarandi:

Samfélagssáttmáli um að hnífaburður sé algerlega óviðunandi; ríkisstjórn, samband sveitarfélaga, skólar, samtök af öllu tagi og fleiri taka sig saman um að stöðva þessa þróun.

Aukin fræðsla í skólum fyrir alla árganga. Alvara hnífaburðar verður gerður börnum og ungmennum ljós í landsátaki sem Landlæknir stýrir enda um lýðheilsumál að ræða. Þegar barn eða ungmenni kemur með hníf eða eggvopn í skóla eða á skólalóð er lögregla alltaf kölluð til ásamt Barnavernd. Engar undantekningar.

Við endurskoðun vopnalaga núna í vetur verða fleiri tegundir egg- og stunguvopna skilgreindar sem vopn; netahnífar, hnífar til netfæragerðar, verkfæraaxir, stunguverkfæri ýmiskonar, eggáhöld o.s.frv. verða sett undir vopnalög. Ákvæði í vopnalögum: „Bannað er að … hafa í vörslum sínum … bitvopn ef blaðið er lengra en 12 sm.“ – Þetta ákvæði verður tekið út. Allur burður utan vinnu er stranglega bannaður.

Höfundi er það vel ljóst að það má skaða annan með nánast hverju sem er; skæri, brotna flösku, nál og margt margt fleira má nota sem vopn. Það er ekki verið að tala um að banna skæri því vopn eru hönnuð til þess eins að skaða aðra og því er gott að byrja á að reyna að losna við þau úr samfélagi okkar. Borðum fílinn í bitum, en ekki í heilu lagi.

Við sömu endurskoðun vopnalaga verður stunguvopna- og hnífaburður meira eða minna bannaður með öllu. Undanþágur byggjast aðeins á sýnilegri þörf, þegar þarf slík tól til vinnu s.s. iðnaðarmanna, netagerðarmanna o.s.frv. Þeir sem verða uppvísir að hnífaburði þurfa að sýna fram á þörf fyrir slík verkfæri. Veiðihnífar falla undir „bannað ef ekki er hægt að sýna fram á þörf“.

Öll sala hnífa annarra en verkfæra og eldhúsáhalda verður bönnuð.

Allur hnífaburður „í margmenni“ á milli kl. 18.00 og 7.00 er bannaður með öllu og viðurlög verða gerð „fáránlega“ ströng, s.s. 700.000 kr. í fyrstu sekt og skilorðsbundið fangelsi fyrir annað brot. Nóg þykir að viðkomandi var með eggvopnið á sér en ógnaði ekki með því.

Ef einhver sveiflar slíku vopni til að ógna öðrum skal sá sami dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og þarf að sæta samfélagsþjónustu í kjölfarið. Það að bera stungu- eða eggvopn þegar eitthvert annað brot er framið þyngir dóm sjálfkrafa.

Þetta er ekki tæmandi listi, langt í frá. Hnífaburði verður tæplegast eytt með öllu, enda slíkt erfitt. En við getum ekki horft upp á þessa þróun án þess að reyna okkar besta.

Athugasemd höfundar: Öll þið sem aðhyllist „hvaðefisma“ (hvað með uppeldið? Hvað með þarfir ungmenna? Hvað með vopnavæðingu Vesturlanda í sögulegu samhengi o.s.frv.) eruð beðin að anda ofan í lyklaborðið. Höfundur veit að þetta leysir ekki önnur samfélagsleg vandamál sem við þurfum alltaf að vera að vinna í. Þetta er römmuð hugmynd til skamms tíma litið en staðreyndin er sú að við þurfum að bregðast við skjótt og við þurfum að gera það sem ein heild.

Höfundur er löggæslu- og öryggisfræðingur.

Höf.: Eyþór Víðisson