Valur og Breiðablik, þau tvö lið sem fjölmiðlar Árvakurs spá tveimur efstu sætunum í hinni árlegu spá fyrir Bestu deild kvenna í fótbolta, mætast í fyrstu umferð deildarinnar á Hlíðarenda í kvöld. Í spánni tóku 20 manns þátt, starfsfólk…

Besta deildin

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Valur og Breiðablik, þau tvö lið sem fjölmiðlar Árvakurs spá tveimur efstu sætunum í hinni árlegu spá fyrir Bestu deild kvenna í fótbolta, mætast í fyrstu umferð deildarinnar á Hlíðarenda í kvöld.

Í spánni tóku 20 manns þátt, starfsfólk Morgunblaðsins, mbl.is og K100 ásamt lausapennum og fréttariturum sem fjalla um leiki deildarinnar.

Valur fékk þar 187 stig í efsta sætinu, Breiðablik 172 stig í öðru sæti og Stjarnan 170 stig í þriðja sæti, þannig að mjög mjótt var á mununum. Níu spáðu Val Íslandsmeistaratitlinum, sex reikna með sigri Stjörnunnar og fimm með sigri Breiðabliks.

Í heild fór spáin þannig að Þróttur fékk 131 stig í fjórða sæti, Selfoss 115 stig, Þór/KA 108, ÍBV 83, Keflavík 60, Tindastóll 38 og FH 36 stig.

Það eru því afar mikilvæg stig í boði á Hlíðarenda í kvöld þegar lengsta tímabil sögunnar í efstu deild kvenna fer af stað. Að þessu sinni leika sex efstu liðin 23 umferðir í stað 18 áður og fjögur neðstu liðin leika 21 umferð en deildinni verður skipt í tvennt eftir hefðbundnar 18 umferðir. Keppni lýkur 6. október.

Stjarnan fær Þór/KA í heimsókn í sínum fyrsta leik á morgun en í annarri umferð 1. og 2. maí leikur Stjarnan heima við ÍBV, Breiðablik úti við Tindastól og Valur úti við FH.