Nýr skammtímakjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við íslenska ríkið var samþykktur naumlega í gær. Tveimur atkvæðum munaði að lokum en um 250 hjúkrunarfræðingar eru ekki með fulla aðild að félaginu og geta því ekki kosið

Ellen Geirsdóttir Håkansson

ellen@mbl.is

Nýr skammtímakjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við íslenska ríkið var samþykktur naumlega í gær. Tveimur atkvæðum munaði að lokum en um 250 hjúkrunarfræðingar eru ekki með fulla aðild að félaginu og geta því ekki kosið.

Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Fíh, segir nauma samþykkt samningsins senda bein skilaboð til yfirvalda og atvinnurekenda um að nauðsynlegt sé að bæta kjör og starfsaðstæður hjúkrunarfræðinga.

„Mér finnst þetta í raun vera rauða spjaldið til ríkisins,“ segir Guðbjörg í samtali við Morgunblaðið og bendir á að vinnustaðir hjúkrunarfræðinga séu yfir níutíu prósent reknir fyrir ríkisfé.

2.619 hjúkrunarfræðingar voru á kjörskrá félagsins en á kjörskrá eru fullgildir aðilar hjúkrunarfræðingar sem fengið hafa laun samkvæmt kjarasamningi félagsins við ríkið og skráð sig í félagið. Kjörsókn var 71,6 prósent og kusu 49,25 prósent með samningnum og 49,15 prósent gegn honum, 1,6 prósent tóku ekki afstöðu.

Spurð um fjölda þeirra sem hafa ekki fulla aðild segir Guðbjörg félagið hafa verið í stöðugu samtali við nemendur í hjúkrunarfræði. Þá reyni félagið að ná til sem flestra en fái ekki nauðsynlegar upplýsingar vegna persónuverndar. Því sé mikilvægt fyrir hjúkrunarfræðinga að láta vita af sér og skrá sig. Einingin og krafturinn náist saman í félagi.