— AFP/Sanka Vidanagama
Þessi ljósmyndari sat í gær í mestu makindum við Ellesmere-vatn, sem er í nágrenni Christchurch á Nýja-Sjálandi, og tók þar myndir af suðurljósunum, Aurora Australis. Þau eru náskyld norðurljósunum, Aurora Borealis, sem við Íslendingar þekkjum vel, enda eru hvor tveggja ljósin af sömu rót runnin.