[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ekki hafði Jónas Erlendsson, bóndi í Fagradal austan Víkur í Mýrdal, fyrr hleypt hrútum sínum úr húsi í gær en brast á með hólmgöngum. Þeir Ljómi Lokksson og Bóndi Vestrason, báðir rammir að afli, gerðu þar vopnabrak og gný mikinn og áttust við af…

Ekki hafði Jónas Erlendsson, bóndi í Fagradal austan Víkur í Mýrdal, fyrr hleypt hrútum sínum úr húsi í gær en brast á með hólmgöngum. Þeir Ljómi Lokksson og Bóndi Vestrason, báðir rammir að afli, gerðu þar vopnabrak og gný mikinn og áttust við af slíku afli að báðir endastungust eftir að þeim laust saman á túni Jónasar. Ekki fylgir þó sögunni hvort þeir Ljómi og Bóndi hafi sagt upp hólmgöngulög og haslað sér völl að fornum sið áður en í brýnu sló með þeim eftir langan vetur í fjárhúsum Fagradals.