Dans Mikil óvissa hefur ríkt um framhald dansnáms á landinu.
Dans Mikil óvissa hefur ríkt um framhald dansnáms á landinu. — Morgunblaðið/Kristinn
„Við erum afar sátt og þakklát að hafa náð þessum áfanga og það er ánægjulegt að finna fyrir þeim ásetningi í ráðuneytinu að tryggja námi í listdansi góða umgjörð til framtíðar,“ segir Einar Örn Davíðsson, stjórnarformaður Listdansskóla Íslands

„Við erum afar sátt og þakklát að hafa náð þessum áfanga og það er ánægjulegt að finna fyrir þeim ásetningi í ráðuneytinu að tryggja námi í listdansi góða umgjörð til framtíðar,“ segir Einar Örn Davíðsson, stjórnarformaður Listdansskóla Íslands. Búið er að tryggja reksturinn á þessu ári en skólinn og mennta- og barnamálaráðuneytið gerðu viðauka við samning sinn um listdans á framhaldsstigi. Niðurstöður úttektar á grunn- og framhaldsstigi listdansnáms eru væntanlegar og verða þær nýttar til að marka stefnu um nám í listdansi til framtíðar.

Eins og sagt hafði verið frá í Morgunblaðinu var öllu starfsfólki Listdansskólans sagt upp um síðustu mánaðamót vegna óvissunnar um fjármögnun skólans. Stjórnendur skólans fagna því að nú verði farið í að tryggja samfellu listdansnáms á landinu, en Listdansskóli Íslands fagnaði 70 afmæli í fyrra.