Vandræða-orð lýsa mismunandi vandræðum. Þeirra á meðal er vandræðagangur sem yfirleitt er ekki notaður um alvarlegan vanda heldur klaufaskap af ýmsu tagi, úrræðaleysi og hringlandahátt

Vandræða-orð lýsa mismunandi vandræðum. Þeirra á meðal er vandræðagangur sem yfirleitt er ekki notaður um alvarlegan vanda heldur klaufaskap af ýmsu tagi, úrræðaleysi og hringlandahátt. „Í stað þess að auglýsa eftir greindri hænu voru þessir apakettir látnir sjá um hátíðina, enda lenti allt í vandræðagangi hjá þeim.“