Ester Arelíusdóttir fæddist 6. júlí 1941. Hún lést 28. mars 2023.

Útför Esterar fór fram 14. apríl 2023.

Elskuleg amma okkar hefur kvatt þennan heim eftir hetjulega baráttu við öll sín veikindi síðustu ár. Amma var yndisleg hlý kona sem þótti ótrúlega vænt um allt sitt fólk. Hún sýndi það sannarlega í verki og var dugleg að fylgjast með og spyrja frétta af öllum. Okkar dýrmætustu minningar af ömmu eru frá aðfangadegi. Þangað fórum við í ljúffenga rjómalagaða súpu á hverju ári í hádeginu og skiptumst á gjöfum við aðra í fjölskyldunni. Jólin byrjuðu sannarlega á hverju ári í hádeginu hjá ömmu. Jólin í ár verða tómleg. Þín er og verður sárt saknað elsku amma. Veröldin er fátækari án þín.

Þín barnabörn,

Einar, Ester Inga
og Ragnheiður.