Mark Aron Sigurðarson er markahæstur hjá Horsens á tímabilinu.
Mark Aron Sigurðarson er markahæstur hjá Horsens á tímabilinu. — Ljósmynd/Alex Nicodim
Aron Sigurðarson tryggði Horsens dýrmætt stig í fallbaráttu dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gærkvöld þegar hann skoraði jöfnunarmark gegn OB, 2:2, á heimavelli. Markið skoraði hann úr vítaspyrnu á 73

Aron Sigurðarson tryggði Horsens dýrmætt stig í fallbaráttu dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gærkvöld þegar hann skoraði jöfnunarmark gegn OB, 2:2, á heimavelli. Markið skoraði hann úr vítaspyrnu á 73. mínútu, nýkominn inn á sem varamaður. Horsens er sex stigum frá fallsæti þegar fimm umferðir eru eftir. Þetta var sjöunda mark Arons í deildinni á tímabilinu og hann er annar tveggja markahæstu manna liðsins.