Ríkisstjórn Íslands átti í gær fund með ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í Safnahúsinu. Á fundinum kynntu fulltrúar ungmennaráðsins tillögur sínar og áherslur er varða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og hvernig þau sjá fyrir sér að staðið verði að framgangi þeirra hér á landi

Ríkisstjórn Íslands átti í gær fund með ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í Safnahúsinu. Á fundinum kynntu fulltrúar ungmennaráðsins tillögur sínar og áherslur er varða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og hvernig þau sjá fyrir sér að staðið verði að framgangi þeirra hér á landi.

Fram kemur á vef forsætisráðuneytisins, að tillögurnar eru níu talsins og dreifast á þrjú málefnasvið: umhverfis- og loftslagsmál, jafnréttis- og mannréttindamál og skóla- og menntamál. Að aflokinni kynningu ungmennanna áttu ráðherrarnir samtal við þau um sýn þeirra á verkefnin fram undan sem lúta að heimsmarkmiðunum.

Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna var stofnað árið 2018 og hefur það að markmiði að vekja athygli á heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun, bæði meðal jafningja sem og samfélagsins í heild sinni. Í ráðinu eru tólf fulltrúar hvaðanæva af landinu, á aldrinum 13-18 ára. Ráðið kemur saman nokkrum sinnum á ári og fundar með ríkisstjórn árlega.