Hönnun Frá Gljúfrasteini.
Hönnun Frá Gljúfrasteini. — Morgunblaðið/Kristinn
Vordagskrá á Gljúfrasteini hefst í dag laugardag kl. 14 með leiðsögn Birtu Fróðadóttur um hönnun og arkitektúr á Gljúfrasteini. „Birta mun beina sjónum að tilurð hússins, hönnun þess og því sérstæða safni hönnunarhúsgagna og listaverka sem menningarheimilið Gljúfrasteinn býr yfir

Vordagskrá á Gljúfrasteini hefst í dag laugardag kl. 14 með leiðsögn Birtu Fróðadóttur um hönnun og arkitektúr á Gljúfrasteini. „Birta mun beina sjónum að tilurð hússins, hönnun þess og því sérstæða safni hönnunarhúsgagna og listaverka sem menningarheimilið Gljúfrasteinn býr yfir. Amma Birtu og alnafna var innanhússarkitekt og húsgagnasmiður frá Danmörku og naut Auður Laxness dyggrar aðstoðar hennar og vináttu við að skapa innviði hússins á eftirstríðsárunum,“ segir í viðburðarkynningu. Þar kemur fram að Birta er starfandi arkitekt og lektor við arkitektúrdeild LHÍ.

Viðburðir verða haldnir á Gljúfrasteini alla laugardaga frá 29. apríl til 27. maí. Dagskránni lýkur með bókmenntagöngu í Reykjavík um slóðir Erlends í Unuhúsi miðvikudaginn 31. maí, en sýning um hann verður opnuð á Gljúfrasteini í júníbyrjun. Allar nánari upplýsingar má finna á gljufrasteinn.is. Frítt er á alla viðburðina.