Þjálfari Andri Snær Stefánsson hefur stýrt KA/Þór frá árinu 2020.
Þjálfari Andri Snær Stefánsson hefur stýrt KA/Þór frá árinu 2020. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
Andri Snær Stefánsson hefur sagt starfi sínu sem þjálfari kvennaliðs KA/Þórs í handknattleik lausu eftir þriggja ára starf. KA/Þór varð Íslands-, bikar- og deildarmeistari á fyrsta tímabili Andra við stjórnvölinn

Andri Snær Stefánsson hefur sagt starfi sínu sem þjálfari kvennaliðs KA/Þórs í handknattleik lausu eftir þriggja ára starf. KA/Þór varð Íslands-, bikar- og deildarmeistari á fyrsta tímabili Andra við stjórnvölinn. „Við þökkum Andra Snæ kærlega fyrir samstarfið undanfarin ár og hans ómetanlega starf við að lyfta kvennahandboltanum hér fyrir norðan upp á enn hærra plan,“ segir meðal annars í tilkynningu á heimasíðu KA.