Lína Guðlaug Atladóttir
Lína Guðlaug Atladóttir
Fjórði og síðasti fyrirlestur annarinnar í fyrirlestraröðinni „Snarl og spjall“ verður haldinn í dag, fimmtudag, í Veröld – húsi Vigdísar stofu VHV-007 milli kl. 17.30 og 18.30. Að þessu sinni fjallar Lína Guðlaug Atladóttir um bók …

Fjórði og síðasti fyrirlestur annarinnar í fyrirlestraröðinni „Snarl og spjall“ verður haldinn í dag, fimmtudag, í Veröld – húsi Vigdísar stofu VHV-007 milli kl. 17.30 og 18.30. Að þessu sinni fjallar Lína Guðlaug Atladóttir um bók sína Rót – allt það sem þú þarft að vita um Kína og meira til.

„Lína Guðlaug Atladóttir er viðskiptafræðingur og Austur-Asíufræðingur og hefur starfað við margvísleg stjórnunarstörf að mestu á kynningar- og markaðssviði bæði hérlendis og erlendis. Lína kom fyrst til Kína árið 2003 og hefur bæði verið við nám, búið og ferðast margsinnis til Kína og víðar í heimildaöflun fyrir bókina. Bókin kom út fyrir síðustu jól og hefur vakið athygli. Hana verður hægt að nálgast hjá höfundi á kostakjörum að fyrirlestri loknum,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að viðburðurinn er á vegum Kínversk-íslenska menningarfélagsins og Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa. Á undan fyrirlestrinum verður boðið upp á léttar veitingar.