Knattspyrnumaðurinn Lionel Messi hyggst yfirgefa Frakklandsmeistara París SG þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar. Það er ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano sem greinir frá þessu en Messi, sem er 35 ára gamall, gekk til liðs við félagið frá Barcelona sumarið 2021

Knattspyrnumaðurinn Lionel Messi hyggst yfirgefa Frakklandsmeistara París SG þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar. Það er ítalski félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano sem greinir frá þessu en Messi, sem er 35 ára gamall, gekk til liðs við félagið frá Barcelona sumarið 2021. Hann hefur verið sterklega orðaður við endurkomu til Barcelona.

Hörður Axel Vilhjálmsson hefur sagt upp samningi sínum við körfuknattleiksdeild Keflavíkur og mun hann því hvorki leika með karlaliði félagsins á næstu leiktíð né þjálfa kvennaliðið. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í gær en Hörður Axel, sem er 34 ára, hefur verið fyrirliði karlaliðs félagsins undanfarin ár.