Áfall Borgarbúar voru skelfingu lostnir.
Áfall Borgarbúar voru skelfingu lostnir.
Átta nemendur og einn öryggisvörður eru látnir eftir skotárás 13 ára nemanda í skóla í miðborg Belgrad í gær. Eftir að hafa skotið öryggisvörð við inngang skólans fór Kosta Kecmanovic inn í kennslustofu, skaut kennara og hóf skotárás á nemendur

Átta nemendur og einn öryggisvörður eru látnir eftir skotárás 13 ára nemanda í skóla í miðborg Belgrad í gær. Eftir að hafa skotið öryggisvörð við inngang skólans fór Kosta Kecmanovic inn í kennslustofu, skaut kennara og hóf skotárás á nemendur. Sjö eru særðir eftir árásina, sem hafði verið í bígerð í mánuð, en listi fannst með nöfnum fórnarlambanna og útfærsla voðaverkanna.