Ole Anton Bieltvedt
Ole Anton Bieltvedt
Greinilega má skynja hvernig kraftur evrópskrar samvinnu og samstöðu magnast, þannig að þeir sem standa utan ESB missa meir og meir af lestinni.

Ole Anton Bieltvedt

Norski „Sjálfstæðisflokkurinn“, Høyre – sem reyndar er miklu sjálfstæðari, nútímalegri og frjálslyndari en sá íslenski; er eins og íslenski Sjálfstæðisflokkurinn var fram undir síðustu aldamót – hélt landsfund sinn 24.-26. mars sl.

Høyre tekur frumkvæðið

Erna Solberg formaður flokksins lagði til að landsfundurinn staðfesti þann vilja flokksins að Noregur gengi að fullu í ESB en vildi láta umræðuna um aðild bíða fram á næsta ár.

Norðmenn kjósa næst til Stortinget 2025, eins og við til Alþingis. Solberg taldi of snemmt að fara í þessa umræðu.

Landsfundurinn var hins vegar ekki sammála formanni og samþykkti með 193 atkvæðum gegn 99 að farið skyldi í allsherjarumræðu og harða sókn fyrir aðild Noregs að ESB án frekari tafa.

Ine Eriksen Søreide, fyrrverandi utanríkisráðherra flokksins, gladdist mjög yfir þessari stefnumörkun fundarins og sagði m.a. þetta í lauslegri þýðingu:

„Sú framsókn og þær breytingar sem eru að eiga sér stað í ESB gerast mjög hratt. Greinilega má skynja hvernig kraftur evrópskrar samvinnu og samstöðu magnast, sem leiðir til þess að þeir sem standa utan sambandsins missa meir og meir af lestinni. Þess vegna er það þýðingarmikið að við, sem erum með skýra já-afstöðu til ESB-aðildar, tökum þátt í eða miklu fremur leiðum nýja umræðu um fulla aðild Noregs.“

Miljøpartiet De Grønne MDG taka undir

27. mars hélt svo landsstjórn Miljøpartiet De Grønne – MDG – fund þar sem ákveðið var með miklum meirihluta að stefna á að Noregur hæfi aðildarviðræður við ESB með aðild að markmiði.

MDG hefur svipaða stefnu í umhverfis-, mannúðar-, Evrópu- og alþjóðamálum og Vinstri-grænir hér ættu að hafa, en hafa ekki. Kannski nokkuð í orði, en ekki á borði. Vinstri-grænir voru að enda við að samþykkja á landsfundi að Ísland væri best komið utan ESB og eftir því sem ég fæ best séð er þá VG eini flokkurinn í Evrópu sem telur sig vinna að vinstri/grænum markmiðum en er ekki hlynntur ESB.

Það er illskiljanlegt hvernig skoðanamyndunin og stefnan hefur þróast í íhalds- og afturhaldsátt – svo ekki sé talað um stefnusvikin í því sem þó var gott – hjá Vinstri-grænum. Slæm saga og sorgleg það, þó að það sé ekki meginmálið í þessum pistli!

Nýlega gerðist það svo að helstu forustumenn verkamannaflokksins, Arbeiderpartiet, í Osló hvöttu til nýrrar umræðu um aðild Noregs að ESB í ljósi þeirra hröðu breytinga og þróunar sem á sér stað í Evrópu um þessar mundir, þar sem samvinna og samstaða styrkist og þýðing ESB, ekki bara í Evrópu heldur um allan heim, vex hraðbyri.

Síðast kosið 1994 – „já“ afar líklegt nú

Norðmenn ræða nú að um þrjár milljónir landsmanna hafi aldrei fengið að taka afstöðu til ESB-aðildar. Þetta eru auðvitað yngstu kynslóðirnar, sem ekki höfðu fengið kosningarétt þegar Norðmenn kusu síðast um ESB-aðild árið 1994, en þá féll aðildin naumlega. Skoðanakannanir benda til að eftir því sem Norðmenn eru yngri sé afstaðan til ESB, evru og Evrópu jákvæðari.

Sterkar líkur benda því til þess að ef til þjóðaratkvæðis um fulla ESB-aðild kemur á næstunni verði niðurstaðan í Noregi jákvæð og það með afdráttarlausum hætti.

Aðalkosningamálið 2025

Nýlega var norska ríkissjónvarpið svo með umræðuþátt í sjónvarpinu, NRK1, þar sem fulltrúar helstu flokka landsins mættu og tjáðu sig um afstöðuna til þess að umræðan um ESB-aðild Noregs væri aftur sett af stað og að þetta mál yrði gert að helsta kosningamálinu í næstu kosningum, 2025. Var ekki annað að heyra en menn væru sammála um þetta.

Stortinget með aðild

Ef litið er til þingstyrks (kosningar 2021) þeirra flokka sem virðast styðja fulla ESB-aðild í Noregi, þá lítur hann svona út: Arbeiderpartiet (verkamannaflokkurinn) 48 þingmenn, Høyre (Sjálfstæðisflokkurinn) 36 þingmenn, Venstre (Viðreisn) átta þingmenn og Miljøpartiet De Grønne – MDG (Vinstri-grænir) þrír þingmenn. Alls eru þetta 95 þingmenn, en á Stortinget sitja alls 169 þingmenn. Kristelig Folkeparti (kristilegi þjóðarflokkurinn) gæti bæst við lið já-manna, nú með þrjá þingmenn.

Hvað gerum við, hvað verður um okkur?

Þessar afgerandi hræringar í Noregi ættu að leiða til þess að við Íslendingar tökum ESB-aðildarmál okkar til gagngerrar skoðunar, með það markmið að leiðarljósi að við munum líka taka til þess skýra afstöðu, í síðasta lagi í kosningunum 2025, hvort við viljum taka upp og ljúka samningaumleitunum um fulla ESB-aðild (og upptöku evru). Í framhaldi af þeim samningum, á grundvelli þeirrar niðurstöðu sem þar fengist, yrði svo að kjósa um aðild.

Ef Noregur hneigist nú sterklega að fullri ESB-aðild og tryggir sér hana og evru á næstu árum er hætta á að efnahags- og þjóðfélagsþróun, velferð okkar, myndi staðna eða steinrenna, okkur til óbætanlegs tjóns, ef við stæðum einir eftir – einangraðir, áhrifalausir og utangátta – utan ESB.

Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni.

Höf.: Ole Anton Bieltvedt