„Firrirðu þig ábyrgð, skepnan þín?“ segir maður við nágranna sem neitar að þrífa upp eftir hund sinn sem stendur hjá og skoðar klærnar á sér. Já, hann firrti sig ábyrgð: hafnaði, reyndi að komast undan ábyrgð

„Firrirðu þig ábyrgð, skepnan þín?“ segir maður við nágranna sem neitar að þrífa upp eftir hund sinn sem stendur hjá og skoðar klærnar á sér. Já, hann firrti sig ábyrgð: hafnaði, reyndi að komast undan ábyrgð. Og hefur alltaf firrt sig ábyrgð á gjörðum síbrotahunds síns. Svona beygist sögnin, ekki „firraði“ eða „hefur firrað“.