Boeing 757-200 vél Delta Air Lines tekur á flug frá Keflavíkurflugvelli.
Boeing 757-200 vél Delta Air Lines tekur á flug frá Keflavíkurflugvelli.
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hóf í gær flug til Detroit í Bandaríkjunum. Þetta er í fyrsta skipti sem Delta býður upp á þennan áfangastað og verður flogið fjórum sinnum í viku í sumar. Detroit er þriðji áfangastaður Delta frá Íslandi

Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hóf í gær flug til Detroit í Bandaríkjunum. Þetta er í fyrsta skipti sem Delta býður upp á þennan áfangastað og verður flogið fjórum sinnum í viku í sumar. Detroit er þriðji áfangastaður Delta frá Íslandi. Fyrir voru New York og Minneapolis og er flogið daglega til þessara borga. Delta Air Lines hefur flogið til New York undanfarin 12 ár og til Minneapolis síðan 2016.

Flug Delta Air Lines til Detroit hefur vakið athygli í ljósi þess að Icelandair mun, í fyrsta sinn, síðar í þessari viku bæta Detroit við sem nýjum áfangastað í leiðakerfi félagsins.