— Skjáskot úr myndskeiði
Gullfallegt myndband hefur brætt hjörtu fólks um allan heim, en þar má sjá brasilískan rakara styðja móður sína á erfiðu augnabliki í lífi hennar. Móðirin, fröken Claudia, er að berjast við krabbamein og fékk son sinn, sem starfar sem rakari, til að raka af sér hárið vegna meðferðarinnar

Gullfallegt myndband hefur brætt hjörtu fólks um allan heim, en þar má sjá brasilískan rakara styðja móður sína á erfiðu augnabliki í lífi hennar. Móðirin, fröken Claudia, er að berjast við krabbamein og fékk son sinn, sem starfar sem rakari, til að raka af sér hárið vegna meðferðarinnar. Hún gat þó ekki haldið aftur af tárunum þegar sonurinn og samstarfsfélagar hans á rakarastofunni tóku sig til og rökuðu sjálfir af sér hárið til að styðja hana. Myndbandið má sjá á K100.is.