Ísland mætir Austurríki í A-landsleik kvenna í knattspyrnu í sumar en vináttuleikur þjóðanna fer fram í Wiener Neustadt 18. júlí. Það verður síðasti leikur íslenska liðsins áður en Þjóðadeild UEFA hefst í haust en liðið mætir Finnum fjórum dögum áður á Laugardalsvellinum
Ísland mætir Austurríki í A-landsleik kvenna í knattspyrnu í sumar en vináttuleikur þjóðanna fer fram í Wiener Neustadt 18. júlí. Það verður síðasti leikur íslenska liðsins áður en Þjóðadeild UEFA hefst í haust en liðið mætir Finnum fjórum dögum áður á Laugardalsvellinum. Austurríki komst í 8-liða úrslit á EM á Englandi í fyrra og í undanúrslit á EM 2017 og er í 18. sæti heimslista FIFA, fjórum sætum neðar en Ísland.