Nokkrir vasahnífar komu í ljós við framkvæmd vopnaleitar í innanlandsflugferðum til og frá Reykjavíkurflugvelli í gær. Það kom þó ekki að sök og voru hnífarnir færðir í innritaðan farangur viðkomandi farþega.
Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla hjá Isavia, segir vopnaleitina almennt hafa farið vel fram og að sáralítil röskun hafi verið á flugferðum vegna leitarinnar. Langflestir farþegar hafi fengið skilaboðin um að framkvæmd yrði vopnaleit og voru komnir tímanlega. „Fólk er þjálfað á Akureyri, Egilsstöðum og Reykjavíkurflugvelli en á minni stöðunum þurftum við að undirbúa leitina betur og þjálfa fólk til þess að geta gert þetta.“ Áfram verður leitað að vopnum í innanlandsflugi í dag til kl. 16, eða meðan á leiðtogafundinum stendur. hmr@mbl.is