Noregur Birkir Bjarnason er kominn aftur til Viking í Stavanger.
Noregur Birkir Bjarnason er kominn aftur til Viking í Stavanger. — Morgunblaðið/Eggert
Viking vann magnaðan sigur á Odd, 3:2, í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik. Birkir Bjarnason kom inn á sem varamaður hjá Viking í hálfleik en þá snerist dæmið við

Viking vann magnaðan sigur á Odd, 3:2, í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik. Birkir Bjarnason kom inn á sem varamaður hjá Viking í hálfleik en þá snerist dæmið við. Víkingar skoruðu úr vítaspyrnum og Sander Svendsen gerði sigurmarkið á 87. mínútu. Birkir átti stóran þátt í undirbúningi sigurmarksins en áður hafði glæsilegt skallamark hans verið dæmt af vegna rangstöðu.